Warning: file_get_contents(https://graph.facebook.com/?ids=https://www.thorunnivars.is/workout/): failed to open stream: HTTP request failed! HTTP/1.1 400 Bad Request in /var/www/virtual/thorunnivars.is/htdocs/wp-content/plugins/popular-post-by-facebook-like/popular-post-by-facebook-like.php on line 17
Warning: array_keys() expects parameter 1 to be array, null given in /var/www/virtual/thorunnivars.is/htdocs/wp-content/plugins/popular-post-by-facebook-like/popular-post-by-facebook-like.php on line 19
WORKOUT
Við Kristín vinkona ákváðum að eftir strangar æfingar í ræktinni að setja okkur aðeins meira krefjandi verkefni til að sjá enn frekari árangur. Ég veit að mörgum ykkar finnst gaman að fylgjast með þessu ferli. Í sameiningu ákváðum við að fá okkur einkaþjálfara og var þjálfarinn Birkir Vagn fyrir valinu. Við æfum saman þrisvar sinnum í viku í World Class Laugum og höfum við nú þegar farið á tvær æfingar. Við byrjuðum á ummáls- fituprósentumælingum og hlökkum til að sjá árangur eftir mánuð. Ég ætla að vera mjög dugleg að sýna ykkur æfingarnar og fjölbreytileikann hjá okkur á Snapchat svo endilega fylgist með. Ég er gjörsamlega búin á því í líkamanum eftir tvær æfingar með honum og ætlum við sko ekki að gefast upp.
Til að hafa næga orku á æfingum fyrir svefnpurkur eins og mig er algjört must að hoppa fram úr rúmminu og fá mér stóran og næringarríkan morgunverð og blanda strax Amino Energy í stóran brúsa með klökum. Ég ætla nú bara að orða það svo en stelpurnar verða orðnar alveg hellaðar fyrir sumarið með þessu áframhaldi hjá honum Birki. Við erum nú þegar búnar að bæta inn brennsluæfingum í æfingavikuna okkar og pössum okkur alltaf að teygja vel. Í morgun vaknaði ég samt eins og að bíll hefði keyrt yfir mig. Í uppáhaldi hjá mér í augnablikinu eru tvenn brögð frá Amino Energy en það eru Cranberry Orange og Strawberry Lime. Bæði ótrúlega frískandi og góð. Verð bara að viðurkenna að ég sé ein af þeim sem getur ekki farið á æfingu án þess að kaupa mér smá auka orku. Sem er hræðilegur en samt svo hrikalega góður ávani. Ég var búin að bíða eftir Strawberry Lime bragðinu svolítið lengi þar sem það var alltaf uppselt. Loksins kom það og færðu strákarnir í Perform mér það að gjöf eftir að hafa beðið óþreyjufull.
Ég kaupi mitt Amino annað hvort í Hagkaup, Krónunni eða Perform.is
Í næstu viku ætla ég að segja ykkur frá æfingunum sem við erum að læra og gera hjá Birki í
þjálfuninni. Fylgstu með ferlinu á Snapchat en þú finnir mig undir nafninu thorunnivars.
Þessi umfjöllun er ekki kostuð.
Vörurnar fékk ég sendar sem sýnishorn.
Ef þú ert að fá borgað fyrir þessa færslu þá er ég nokkuð viss um að samkvæmt lögum verður þú að upplýsa um að þetta sé auglýsing…annars bara takk fyrir skemmtilega bloggsíðu 😉
Ég tek fram í færslunni að ég hafi fengið Amino Energy að gjöf en annars er þetta ekki kostuð færsla.
Cranberryið er það alveg worth trying?
Ég er með Fuit Fusion minnir mig að það heitir en ég veit ekki alveg hversu mikið ég er að digga það!
Langar í eitthvað sem ég bara fæ ekki nóg af! 🙂
Sko já ég verð að segja það..en ég er samt ógeðslega léleg í þessu þar sem ég elska Watermelon sem allir haha….
Mér finnst Cranberry betra en Strawberry 🙂
Hvað er snappið til að geta fylgst með 🙂 ?
thorunnivars 🙂