Warning: file_get_contents(https://graph.facebook.com/?ids=https://www.thorunnivars.is/marc-jacobs-daisy-eau-so-fresh/): failed to open stream: HTTP request failed! HTTP/1.1 400 Bad Request in /var/www/virtual/thorunnivars.is/htdocs/wp-content/plugins/popular-post-by-facebook-like/popular-post-by-facebook-like.php on line 17
Warning: array_keys() expects parameter 1 to be array, null given in /var/www/virtual/thorunnivars.is/htdocs/wp-content/plugins/popular-post-by-facebook-like/popular-post-by-facebook-like.php on line 19
MARC JACOBS DAISY EAU SO FRESH
Það er ekki tilviljun að Marc Jacobs Daisy ilmirnir hafi unnið titilinn “Uppáhalds Ilmvatn lesanda” síðunnar. Daisy ilmirnir frá Marc Jacobs eru stórkostlegir hvort sem það er sá klassíski Daisy, Daisy Eau so Fresh (á myndinni) eða sá nýji Daisy Dream. Ég hef notað þá alla en þessi hér fyrir ofan Daisy Eau So Fresh er alltaf í hvað mestu uppáhaldi hjá mér. Þetta er mín lykt og þekkja hana flestir sem mína lykt í kringum mig. Fyndna er samt að ég, mamma og besta vinkona mín notum hana allar. Marc Jacobs Daisy Eau So Fresh er svolítið skemmtileg útgáfa af upprunalega ilmunum en ríkari af ávöxtum. Hún færir þér sólskin og vor í hjarta samstundis og lætur mér svo sannarlega líða vel. Fyrir mér er ilmurinn léttur, skemmtilegur og fjörugur og er hann fullkominn í jólapakkann. Ég sver það að ég finn lyktina af honum í gegnum tölvuna og á morgnanna þegar ég stend fyrir framan klasann allan af ilmvötnunum mínum verður hann oftast fyrir valinu. Ég er á fjórða glasinu mínu af ilminum en ég get alltaf keypt hann aftur og aftur og aftur.
Topp nótur: Hindber, Greipaldin, Pera
Mið nótur: Fjólur, Villt rós, Epli
Grunn nótur: Musk, Sedrusviður og Plóma
Hver er þinn uppáhalds ilmur frá Marc Jacobs?
Finnst þær allar góðar, væri sko til í að vinna svona ilmvatn 😀
nýji Daisy Dream er mjög góður
Ég elska alla ilmina. Væri alveg til í að vinna einn.
OMG mitt uppáhald já takk <3
Væri ekki leiðinlegt að eignast svona góðan ilm
Væri sko til í þennan, hef ekki átt neinn frá Marc Jacobs svo ég held að það sé kominn tími til 😉
allir 🙂
Allir alveg dásamlegir. Get ekki gert upp á milli þeirra <3 <3
Ohh.. hvað ég væri mikið til í svona dásamlega gjöf í skóinn 😀
Bað einmitt drenginn minn um að fá prufu í vikunni (þar sem ég kemst ekki út úr húsi) en allt búið 🙁 Langar svo að ilma vel um jólin 😉
Held hreinlega að ég hafi aldrei notað Marc Jacobs ilm, en alltaf gaman að breyta til
Hef ekki prófað ilmina en hef heyrt að séu æðislegir 🙂
Væri ekki á móti svona ilm takk fyrir
Mikið væri ég til í nýtt daisy dream þar sem mínu var stolið í sumar, glælnýju!
Jiii get ímyndað mér það- ég týndi einmitt tappanum einu sinni og var alveg í rusli. Hvað þá hefði ég týnt eða sjálfu ilmvatninu verið stolið
Ég hef aldrei prufað Marc Jacobs ilmvatn en væri sko til í að prufa 🙂
mikið væri ég til í nýtt ilmvatn hef ekki átt ilmvatn í langan tíma 🙂
Daisy Dream er klárlega málið. Yndislega góð lykt
Daisy Dream er klárlega málið. Yndislega góð lykt
Ég væri mjög mikið til í eitt ilmvatn frá Marc Jacobs 😀 Geðveik lykt
langar í alla 🙂
MInn uppáhalds er Daisy dream, ótrúlega góð lykt 🙂