Warning: file_get_contents(https://graph.facebook.com/?ids=https://www.thorunnivars.is/jolakjollinn-fra-y-a-s/): failed to open stream: HTTP request failed! HTTP/1.1 400 Bad Request in /var/www/virtual/thorunnivars.is/htdocs/wp-content/plugins/popular-post-by-facebook-like/popular-post-by-facebook-like.php on line 17
Warning: array_keys() expects parameter 1 to be array, null given in /var/www/virtual/thorunnivars.is/htdocs/wp-content/plugins/popular-post-by-facebook-like/popular-post-by-facebook-like.php on line 19
Í hádeginu í dag fór ég í skemmtilegt boð á vegum Bestseller fyrirtækisins (nú þar sem ég vinn!) en bloggurum og fjölmiðlafólki var boðið. Það er stundum líka rosalega gaman að að fá að vera gestur í vinnunni og fá að njóta. Fyrirtækið bauð þeim sem þau hafa verið að vinna með á árinu og þakkaði okkur fyrir árið sem er að líða. Frábærar veitingar og Björn Bragi á svæðinu. Til sýnis voru nýjustu flíkurnar úr hverri búð og auðvitað fann ég jólakjólinn í ár, en ekki hvað! Það beið mín svartur ekta LBD (Little Black Dress) níþröngur kjóll frá merkinu Y.A.S og fór ég beint eftir boðið í Turninum inn í Smáralind og nældi mér í hann- ásamt aragrúa af sokkum. Mig nauðsynlega vantaði sokka svo ég keypti mér bæði glimmersokka og sokka í ræktina frá Y.A.S.
Það var fyndið að akkurat í dag er ár síðan ég byrjaði að vinna hjá fyrirtækinu en ég starfa í versluninni Vila að hluta. Ég þakkaði því stjórnendum fyrirtækisins fyrir að halda svona flott partý fyrir mig akkurat á þessum degi til að fagna starfsafmælinu (í gríni).
Y.A.S Twisty Dress in Mesh fæst í Vero Moda – Það eru til þó nokkrir kjólar í Kringlunni og einn eftir í stærð 42 í Smáralind. Hafið hraðar hendur ef þið viljið næla ykkur í fullkominn “lítinn svartan kjól” fyrir jólin.
ooh that black dress is sooo gorg! xO!
http://www.thehautecookie.com
-Facebook-
http://www.facebook.com/TheHauteCookie
-Twitter-
http://www.twitter.com/thehautecookie
-Instagram-
http://www.statigr.am/thehautecookie
Þetta er rosalega töff kjóll!
Katarina x
HALLÓ <3 hann er mega flottur! Hefði viljað njóta hádegisins með þér x
Þú hefðir hlegið hátt- Björn Bragi gerði grín af Beauty Tips 😀
NEI uppáhaldið mitt! 🙁
Æðislegur kjóll – hvað er verðið á honum?
10.990! 🙂 gleymdi alveg að setja það inn 😉