Warning: file_get_contents(https://graph.facebook.com/?ids=https://www.thorunnivars.is/clarisonic-pedi/): failed to open stream: HTTP request failed! HTTP/1.1 400 Bad Request in /var/www/virtual/thorunnivars.is/htdocs/wp-content/plugins/popular-post-by-facebook-like/popular-post-by-facebook-like.php on line 17
Warning: array_keys() expects parameter 1 to be array, null given in /var/www/virtual/thorunnivars.is/htdocs/wp-content/plugins/popular-post-by-facebook-like/popular-post-by-facebook-like.php on line 19
CLARISONIC PEDI
Áður en ég eignaðist þessa græju gerði ég mér ekki grein fyrir því hvað það skiptir mig miklu máli að fæturnir séu fínir. Alltaf hef ég verið að nota bara venjulegan rasp og eftir langan vinnudag í VILA er ég oft afskaplega þreytt í fótunum. Ég eignaðist þetta tæki fyrir um mánuði síðan og ég er bara ekki frá því að það sé mögulega búið að bjarga lífi mínu. Eftir langan dag er í raun ekkert betra að komast heim í gott fótadekur og heitt freyðibað en ég hef alltaf verið með slæmar fætur sem verða auðveldlega mjög þreyttar.
Allar þessar vörur koma í kassa saman ásamt hleðslutæki sem ég tók ekki mynd af. Fyrst um sinn hugsaði ég ,,er þetta að fara að slá í gegn hjá lesendum?”. Siðan hrönnuðust inn fyrirspurnirnar frá vinkonunum mínum sem sögðust ,,þurfa að eignast svona tæki”. Eftir að ég sendi þeim snap með öllum skrefum fótsnyrtingarinnar, haha. Stelpurnar hjá Clarisonic sögðu mér að það væri heldur flókið að komast upp á lagið með röðina sem ég ætti að nota burstahausina, hvaða haus ætti að nota 2x í viku og hvaða haus daglega. Ég var komin með þetta eftir fyrstu tilraun og geymi nú burstann með bleika og appelsínugula hausnum í sturtunni. Ef þú ert týpan sem þarf endalaust að fara í fótsnyrtingu eða finnur fyrir óþægindum í fótunum, haltu áfram að lesa.
Í kassanum er: Fótsnyrtibursti, 2x burstahausar, hleðslutæki, fótaskrúbbur,
dropar sem hraða endurnýjun húðarinnar og fótaáburður
DAGLEGA
1. Skrúbba fæturnar í tvær mínútur með bleika og appelsínugula burstahausnum.
Bleyti burstann, set smá doppu af Pedi-Buff skrúbbinum og nudda inn í húðina í
tvær mínútur.
2. Skola af og ber svo á Pedi-Balm fótaáburðinn (sem ég geymi nú á náttborðinu
og nota alltaf áður en ég fer að sofa).
TVISVAR Í VIKU
1. Tvisvar í viku notar maður litla burstahausinn með gráa raspinum. Nota það á þurrar
fæturnar og nudda vel þar sem syggið er mikið. Eina mínútu á hvert svæði t.d. hæl og
tær en ekki nota neitt ofan á. Passa að gera ekki of fast því þá virkar hann ekki jafn vel.
2. Nota þá aftur bleika og appelsínugula burstann með doppu af Pedi-Buff
skrúbbinum og nudda vel inn í húðina í tvær mínútur á hvorn fót.
3. Nota Pedi-Boost dropana á þurrar fæturnar og nudda vel inn í og leyfi að þorna
4. Ber Pedi-Balm fótaáburðinn á fæturnar
Þetta hljómar allt eins og þetta sé geðveik vinna en í alvöru tekur þetta max tíu mínútur tvisvar í viku og 4 mínútur í sturtunni á morgnanna eða fyrir bað á kvöldin. Fæturnir á mér eru bara gjörsamlega allt aðrir og er Pedi tækið frá Clarisonic komið til að vera í baðherbergisskápnum hjá mér, ekki einu sinni skápnum heldur bara á baðkarsbrúninni. Clarisonic mælir með því að þrífa báða burstahausana vikulega með volgu vatni og sápu. Þessi bursti er ekki bara flottur heldur er ótrúlega þægilegt að ferðast með hann þar sem hægt er að hlaða hann með USB snúru. Rafhlaðan dugar skemur en í húðhreinsiburstanum vegna þess að það þarf mun meira power til að skrúbba fætur en andlit. Ég hleð minn vikulega og sýnir hann þér það með rauðu ljósi þegar rafhlaðan er tóm.
VINNINGSHAFI
Alda Kristinsdóttir
Clarisonic Pedi fótsnyrtingaburstinn fæst í snyrtivörudeildum Hagkaupa
í Smáralind ,Kringlunni og Akureyri. Um helgina er 20% afsláttur af tækinu.
Vöruna fékk ég senda sem sýnishorn.
Gleðilegt sumar – mínar litlu tásur eru alveg til í að vera alltaf sætar en ekki bara stundum 🙂
Ójá langar svo að vera með fabjulös fætur í sumar 🙂 <3
ohh ég hef svo mikla þörf fyrir þetta, hræðilegir fæturnir mínir og það væri yndislegt að fá þetta sett! yrði sko vel notað á mínu heimili
Mikið ofboðslega væri ég til í svona til þess að geta skartað flottum tásum í sumar!
Ég á von á barni í Ágúst og það er orðið ansi erfitt að raspa hælana og fínpússa fæturnar með handafl þökk sé bumbunni, clarisonic pedi væri fullkominn svo ég geti verið á sandölum í sumar 🙂
Kv. ólétta konan sem þráir fótadekur! 🙂
Jimundur minn hvað ég þarf þetta, losna aldrei almennilega við siggið 😀
Væri til í þetta fyrir sumarið!! 🙂
Fæturnir mínir yrðu voða glaðir með þetta 🙂
Eitt eru fæturnir mínir – annað eru fætur kærasta míns!! Þeir eru algjört eilífðarproject – gæti vel þegið smá aðstoð í þeirri viðureign!!
Haha! Ég prófaði á þetta Harry og hann var mjög ánægður 😀
Vá hvað mig langar mikið í svona !
Mikið væru þreyttu dæturnar à mér til í þetta! Alltaf æðislega gaman að lesa bloggið þitt! 🙂
May your feet take you where your heart wants to go 😉 og ekki verra að vera með fallegar fætur í leiðinni 🙂
Ég er svo mikill sökker fyrir fótadekri og þessi pakki gargar alveg á mig 🙂
Ohh vissi ekki að þetta væri til. Þetta væri fullkomið fyrir mig, èg svitna svo auðveldlega og fæturnar sjóðast alveg. Væri svo mikið til í þetta fyrir vinnu sumarið sem er framundan.
Và jà takk:) Fæturnir mínir thurfa sko mikid à thessu ad halda 🙂
Væri sko til í þetta fyrir þreyttu fætunar mínar <3
Það er svo gaman að lesa bloggið þitt 🙂 en þetta yrði frábær sumargjöf 🙂
Ah væri svo til í þetta! Var akkurat að tala um hvað ég þarf mikið á svona tæki að halda! Algjörlega fullkomið fyrir sumarið, sérstaklega þegar maður fer að ganga í sandölum og svoleiðis 🙂 !
Mikið væri ánægjulegt að eignast svona tæki! A andlisburstann þeirra og hann hefur breytt lifi mínu !
Gleðilegt sumar ljúfan 🙂 Táslunum mínum veitir ekki af smá dekri fyrir sumarið 🙂
Þú bara veist ekki hversu heitt ég þrái þessa græju! Omygod I want this <3 Ps. Þú ert yndi 🙂
Þetta hljómar dásamlega, dekur fyrir þreytta fætur er oft það eina sem maður þarf 😀
Ó já takk, þetta væri frábært 🙂
Væri mjög mikið til í að prufa þetta 🙂
Ójá væri sko til í þetta svona fyrir sumarið 🙂
Já takk 🙂 væri ekki leiðinlegt að eignast svona fyrir sumarið þar sem maður er mikið á tánum yfir sumarið 🙂
Þetta er eitthvað sem ég þarf að eignast! Yrði flottur við hliðina á Clarisonic andlitsburstanum 😉
Já takk, væri sko til í svona fótadekur.. mínir þreyttu og lúnu fætur yrðu mega ánægðir hehe.
Er alltaf á tánum ( meika varla sokka) þannig að það yrði ekki slæmt að geta haft fæturnar flottar 😉
ohh hversu æðislegt að fá þennan vinning 🙂
ef það er eitthvað sem þarf dekur þá eru það fæturnir. virðast alltaf sitja á hakanum hér greyin 😛
Elska Clariosonic vörurnar, er alveg 100% viss um að þetta er glæsileg vara sem skilar árangri. Langar að fá flottar tær og fætur í sumar <3 🙂
Já takk, tásurnar mínar yrðu sko kátar með svona græju 🙂
Væri svo frábært að fá svona sumargjöf. Mínir fætur þyrftu svo sannarlega á þessu að halda ☀️
Þetta er klárlega eitthvað sem ég þyrfti að eignast 🙂
Vá hvað mínar ljótu ballett-tær þurfa á svona græju að halda!
æj ég væri svo til.
Úff játakk! Væri virkilega kærkomið 😀 Svo gott að vera með fínar tásur
Ég væri alveg meira en til í svona græjur til að hafa tásurnar mínar fínar í sumarskónum í sumar ! 🙂
ég á andlitsburstann og hann er æði. Væri til í að gefa mömmu þennan.
Vá hvað þetta kæmi sér vel, ég er alltaf ónýt í fótunum og elska svona dekur 🙂
Ég á Clarisonic andlitsbursta og er meira en til í einn fyrir tásurnar :3
Vá mínar táslur þrá svona dekur! Algjör lúxus! 😀
Gleðilegt sumar 😀 Ég væri ekkert smá til í svona til að gera fæturnar mínar fínar í sumar 😀
já vá hvað ég væri til í þetta 🙂 hef bara notað alltaf venjulegan rasp 😉 væri geggjað fyrir sumarið 🙂
Ég væri til í að vera með fínar táslur í sumar eða gefa mömmu hann á mæðradaginn
Vá já takk væri svo sannalega til í svona fyrir mínar tásur 🙂 Gleðilegt sumar 🙂
Vá já takk væri svo sannalega til í svona græjur fyrir tásurnar mínar 🙂 Gleðilegt sumar 🙂
Vá hvað þetta væri mikill draumur. Mér finnst fátt meira fráhrindandi en ljótar tær og því myndi ég ekki slá hendinni á móti þessu svo mínar geti verið FAB í allt sumar. Þegar tærnar verðar komnar í tip top stand má maður fara á stað að kaupa sér fallega sandala 🙂
Vá hvað þreyttu fæturnir mínir yrðu glaðir með svona fínan pakka <3
Það yrði draumur í dós að eignast svona flotta græju,ég vinn sem þjónn og er alltaf þreytt í fótunum og hver elskar ekki fótadekur og sætar tásur 🙂
Já takk væri svo til í að eignast þennan flotta pakka fyrir þreytta fætur 🙂
Jii svo gaman að gera tàslur mar klàrar fyrir sumarið. Gleðilegt sumar !
Oh dásamlegt!
Ég þrái svona og á þetta svakalega skilið 😉 það finnst mér alla vega núna þreytt í fótunum eftir göngutúr dagsins
Ég er ekki bara með svakalega ljótar tær heldur mikil fótavandamál svo að þetta myndi slá í gegn svo ég geti kannski sportað tásunum eitthvað í sumar 🙂
Þarf einmitt svona því ég er að fara byrja þjónavinnu og fæturnir mínir munu pottþétt rústast! Væri meira en til í svona til að bæta við í dekurdagana mína því fæturnir mínir þurfa smá ást líka <3
vá væri allger draumur að fá þetta :D! tærnar mínar eru hrikalegar, þarfnast virkilega svona sett til þess að gera þær aðeins sætar fyrir sumarið 🙂 <3
já takk, Eg a von a barni í agust og það er farið að verða erfitt að bogra yfir tanum þvi það er eitt stykki strakur þarna a milli, svo þetta kæmi ser vel.
Ó hvað ég þrái þetta tæki. Er eini snyrtifræðingurinn á einu snyrtistofunni í bænum og sárvantar almennilegt fótadekur fyrir tásurnar mínar þar sem það getur verið erfitt að gefa sjálfum sér alvöru fótsnyrtingu… þetta tæki myndi redda manni þannig að tásurnar mínar geta líka verið sætar og fínar 🙂
Ó þvílík snilld! Fæturnir á mér myndu sko hoppa af kæti ef ég færi ađ dekra viđ þá haha 😉 Er alltaf á tánum en ađ vera međ fallegar táslur gerir allt miklu betra 🙂
Verð að eignast þessa snilld!!!! Fæturnir mínir eru eins og þau séu 80 ára en ekki 27… :O 😛
Já væri vel til í að eignast svona…held reyndar að hún móðir mín ætti alvarlega að hugsa að fá sér svona græjur fyrir sína fætur!
Gleðilegt sumar 🙂 Mikið myndi þetta gleðja mig og mínar þreyttu tásur
jájájá takk! fæturnir á mér eru hræðilegir, væri yndislegt að mýkja þá aðeins og auka blóðflæðið!
Okei þetta hljomar ein mesta snilldin. Í vinnunni minni er voðalega lítið setist niður og fá fæturnir heldur betur að finna fyrir þvi. Mér finnst svo mikilvægt að fæturnir mínir og tásur séu í góðu standi og líti vel út svo þetta tæki yrði mjög mikið notað.
Annars bara takk fyrir að vera svona dugleg að blogga og hvað þá að hafa þessa skemmtilegu leiki í gangi, það skemmir sko alla ekki fyrir. Bloggið þitt er tær snilld 🙂
Mikið væri frábært að eiga svona græjur og yndislegar mjúkar táslur 🙂
Vá ég vildi óska þess að ég gæti gefið mömmu minni þessa græju, hún er með þreyttustu fætur sem ég hef séð og vildi óska þess að ég gæti hjálpað henni!
Ó hvað minar þreyttu hjóla og hlaupatásur myndu elska svona fínerí 🙂
Væri alveg til í að prufa 😀
OMG ! Þetta væri besta afmælisgjöfin !!
Þetta hljómar æðislega vel! Ég elska clarisonic vörurnar svo mikið og hef notað miuna mína næstum á hverjum einasta degi síðan ég fékk hana. Love it!
Oh vá væri sko til í að prófa svona æðislegt fótadekur! Fæturnir búnir að vera í klessu í vor eftir að ég byrjaði að hlaupa meira svo þetta myndi eflaust hjálpa mikið! 🙂
Vá ég væri rosalega til í að eignast svona flotta græju! Er svo löt að sjá um tærnar mínar. Væri mjög vel þegið 🙂
ja takk
Ómæ! Þetta er það sem ég þarf!
Hef nú prófað ýmislegt en þetta held ég að geti toppað allar aðrar aðferðir til að fara vel með þreyttar fætur.
Vá hvað ég hefði gott af því að eignast svona… algjörlega eitthvað fyrir mig.
Ohh hvað ég elska hvað þú bloggar alltaf um eitthvað sem ég þarf að eignast 🙂 ég hafði ekki hugmynd um að svona græja væri til 🙂 takk fyrir að benda á það. Þetta er einmitt ástæðan fyrir því að ég elska að lesa bloggið þitt 🙂 þú ert alltaf að sýna manni eitthvað sniðugt 🙂
Mikið væri ég til í að eignast þetta tæki því fæturnir mínir þurfa mikið á dekri að halda 🙂
Knús 🙂
Ú Vá!!! Þetta er draumur í dós, það er svo gaman að dunda sér við svona lagað. Gleðilegt sumar :-).
Þvílíkur draumur sem það væri að eignast þennan! Eftir að hafa byrjað að hlaupa og koma mér af stað í ræktinni aftur eru fæturnir mínir í algjöru rugli, væri svo sannarlega til í að prófa þetta 😀
Já takk! Minar lúnu tásur væru alveg til i svona treat!
VÆRI DRAUMUR AÐ FÀ SVONA.ÞÀ VÆRI VON UM AÐ VERA MEÐ FALLEGRI TÆR EN BÓNDINN.
Guð hvað mínir fætur yrðu glaðir ef þeir kæmust í svona dekur reglulega!
Mikið væri ég til í svona dekur fyrir táslunar mínar <3
Sætar tásur í sumar – já takk 🙂 Það er alveg að bresta á með blíðu stelpur svo frelsum tásurnar 🙂
Þessi gjöf yrði kærkomin fyrir mínar tásur.
xoxo
Já takk, þarf að hugsa betur um fæturnar þar sem ég hreyfi mig mikið ☺️
Ó já væri sko til í svona, hver er ekki til í fótadekur 🙂
ohh já væri svo til í svona, búin að vera í eintómu basli með fæturnar á mér þannig þetta myndi algjörlega bjarga mér !! gleðilegt sumar
já takk 🙂
Þetta væri nú barasta algjör draumagjöf fyrir sumarið mitt:) Þá get ég verið með gordjöss fætur í brúðkaupinu mínu:)
já takk ég þarf svona lífsnauðsynlega fæturnir allir í skralli og hef ekki efni á svona lúxus þótt ég eigi hann skilið
Mínar tásur þurfa bráðnauðsynlega að fá svona dekur daglega! 🙂
Þetta væri æði fyrir fæturnar mínar 🙂
Væri dásamlegt að geta dekrað við fæturnar á milli vakta í sumarvinnunni 🙂
Mig vantar akkúrat svona græju fyrir sumarið, gamli raspurinn er ekki alveg að gera sig lengur.
Þessi pakki væri fullkomin viðbót í fóta dekrið okkar mömmu 🙂
Mínir fætur væru sko meira en til í svona flottheit! 🙂
Gleðilegt sumar !! Væri æði að vinna svona svaka pakka fyrir sumarfríið 🙂
Gleðilegt sumar! Fæturnir mínir yrðu nú mjög sáttir að fá svona flotta græju. Ég er hjúkrunarfræðingur og er oft orðin mjög þreytt í fótunum eftir langan og erfiðan vinnudag og þá myndi þessi græja koma sér mjög vel! 🙂
Þetta væri mesta snilld í heimi! Fæturnir á mér eru svo þurrir og ég finn oft svo til útaf hörðu siggi og þurrki. Draumurinn er að eignast svona
Væri dásamlegt fyrir fæturnar á mér að prófa þessa snilld 🙂
Vá, hvað ég væri til! Er með svo þreytta fætur og ömurlegt sigg.
væri mega mikið til! og ég á afmæli og þú ert uppáhalds bloggarinn minn! 😀
Vá hvað ég er til í þetta… og vera með fínar tásur allan ársins hring!!
YES please! Væri heldur betur til í svona 🙂
Þreyttu fæturnir mínir væru svo til í svona að ég tali nú ekki um eigandann ❤️
já takk! ég myndi ekki slá hendinni á móti svona græju.
Vá væri sko til i þetta, alltaf i veseni með þurru fæturna mína:)
Það yrði svo mikil dásemd að eignast þetta. Alltaf með fínar tásur í sandölum í sumar.
Já takk, það væri frábært að fá að prófa þessa græju.
Það væri frábært að eignast þetta 🙂
Mikið væri ég til í þessa græju til að vera með fína fætur í sumar 🙂
Væri dásamlegt ađ eignast svona flottu græju! 🙂
Gleðilegt sumar væri bara frábært að geta dúllað við táslurnar eftir að vera berfættur í garðinum að planta græðlingum 🙂
Mikið hljómar þessi pakki vel, væri alveg til í svona fótadekur fyrir sumarið 🙂
Sem nýbökuð móðir væri nú ekki leiðinlegt að geta dekrað aðeins við fæturnar sínar eftir allt of mikinn bjúg og leiðindi á meðgöngunni. Takk fyrir skemmtilegan fróðleik.
Mínar táslur þrá tækið,ekki fegurstu fætur í heimi get ég sagt þér.Ætla að skella mér í sólina fjærri klakanum…..Því segi ég já takk 🙂 … Og vona að ég verði heppin!
Já takk,bráðnauðsynlegt mínum táslum. 🙂
Draumur í dós!!
Elska minn og langar mjög mikið i þennan fyrir fæturnar!!
Kosy
Okei sko það er eitt að langa í – en annað að ÞURFA. Og ég skrifa það viljandi með hástöfum.
Hælarnir á mér eru eins og ristað brað og flækjast óþægilega oft svona í sænginn -æjh – erfitt að lýsa.
Það væri draumur að geta verði í fallegum sandölum í sumar og skartað á sama tíma fallegum fótum!
Ég væri svo innilega til í að vinna þetta til að dekra við síþreyttar, sprungnar og óaðlaðandi fæturnar mínar!
Fullkomnir fætur fyrir sumarið, já takk!
Ohhh hvað ég væri til í svona dekurbursta!
Vá hvað það væri yndislegt að byrja sumarið með svona græju og vera með virkilega flotta fætur
Ohhh ég væri svo til í svona sett 🙂
Hæhæ, ég væri rosalega til í svona tæki, þá gæti ég kannski loksins haldið fótunum mínum fínum 🙂
Já væri alveg gott að geta dekrað aðeins við lappirnar eftir langan dag! 🙂
Mínar fætur yrðu mjög ánægðar. 😉