Warning: file_get_contents(https://graph.facebook.com/?ids=https://www.thorunnivars.is/marc-jacobs-daisy-eau-so-fresh/): failed to open stream: HTTP request failed! HTTP/1.1 400 Bad Request in /var/www/virtual/thorunnivars.is/htdocs/wp-content/plugins/popular-post-by-facebook-like/popular-post-by-facebook-like.php on line 17
Warning: array_keys() expects parameter 1 to be array, null given in /var/www/virtual/thorunnivars.is/htdocs/wp-content/plugins/popular-post-by-facebook-like/popular-post-by-facebook-like.php on line 19
MARC JACOBS DAISY EAU SO FRESH
Það er ekki tilviljun að Marc Jacobs Daisy ilmirnir hafi unnið titilinn “Uppáhalds Ilmvatn lesanda” síðunnar. Daisy ilmirnir frá Marc Jacobs eru stórkostlegir hvort sem það er sá klassíski Daisy, Daisy Eau so Fresh (á myndinni) eða sá nýji Daisy Dream. Ég hef notað þá alla en þessi hér fyrir ofan Daisy Eau So Fresh er alltaf í hvað mestu uppáhaldi hjá mér. Þetta er mín lykt og þekkja hana flestir sem mína lykt í kringum mig. Fyndna er samt að ég, mamma og besta vinkona mín notum hana allar. Marc Jacobs Daisy Eau So Fresh er svolítið skemmtileg útgáfa af upprunalega ilmunum en ríkari af ávöxtum. Hún færir þér sólskin og vor í hjarta samstundis og lætur mér svo sannarlega líða vel. Fyrir mér er ilmurinn léttur, skemmtilegur og fjörugur og er hann fullkominn í jólapakkann. Ég sver það að ég finn lyktina af honum í gegnum tölvuna og á morgnanna þegar ég stend fyrir framan klasann allan af ilmvötnunum mínum verður hann oftast fyrir valinu. Ég er á fjórða glasinu mínu af ilminum en ég get alltaf keypt hann aftur og aftur og aftur.
Topp nótur: Hindber, Greipaldin, Pera
Mið nótur: Fjólur, Villt rós, Epli
Grunn nótur: Musk, Sedrusviður og Plóma
Hver er þinn uppáhalds ilmur frá Marc Jacobs?