Warning: file_get_contents(https://graph.facebook.com/?ids=http://www.thorunnivars.is/50-stadreyndir-um-mig/): failed to open stream: HTTP request failed! HTTP/1.1 400 Bad Request in /var/www/virtual/thorunnivars.is/htdocs/wp-content/plugins/popular-post-by-facebook-like/popular-post-by-facebook-like.php on line 17
Warning: array_keys() expects parameter 1 to be array, null given in /var/www/virtual/thorunnivars.is/htdocs/wp-content/plugins/popular-post-by-facebook-like/popular-post-by-facebook-like.php on line 19
Stundum finnst mér gaman að taka þátt í allskonar svona hlutum og dóti sem erlendir bloggarar gera og á ég nokkrar mjög góðar erlendar vinkonur sem eru einmitt bloggarar. Þær skora oft á mig að taka þátt í svona rugli og ákvað ég því að svara hér 50 spurningum um sjálfa mig eða segja ykkur 50 hluti sem þið hafið ekki hugmynd um. Ég er búin að vera að vinna svo mikið eftir prófin og ég veit að þið viljið alltaf kynnast mér betur. Svo voila, hér eru 50 staðreyndir um mig! Ég lofa yndislegri húðumhirðu færslu og sýni ykkur áramótaförðunina mína fljótlega.
1 – Ég heiti fullu nafni Þórunn Sigurborg Ívarsdóttir í höfuðið
á ömmu minni en hvorugar notum við miðjunafnið
2 – Ég fæddist með hjartalokugalla og fór í hjartaþræðingu 9 ára gömul
3 – Ég á 4 systkini, þrjú hálf og eitt alsystkini
4 – Ég tek ekki lit í sól
5 – Ég er ljóshærð
6 – Ég er með ofnæmi fyrir kanil, karrý og engifer
7 – Ég er einungis 162 cm á hæð og bregður mörgum þegar þeir hitta mig í fyrsta skipti
8 – Uppáhalds eftirrétturinn minn er Creme Brulée
9 – Nei kærastinn minn er ekki útlendingur
10 – Ég er ómöguleg ef ég fæ ekki 9 klst svefn
11 – Þegar ég var yngri sofnaði ég alltaf fyrir kvöldmat
12 – Foreldrar mínir “neyddu” mig til að spila á píanó í 10 ár
13 – Ég nota skó númer 36
14 – Ég elska að brjóta saman föt og taka til í skápum (eða fatabúðarlagerum)
15 – Ég fer í freyðibað á hverju einasta kvöldi
16 – Ég drekk risa stórt glas af ísköldu vatni áður en ég fer að sofa..alltaf
17 – Ég er mjöööööög hávær
18 – Ég hef búið í Washington D.C, Los Angeles og Chicago
19 – Það eru 6 ár síðan ég ferðaðist innan Evrópu
20 – Ég vissi að kærastinn minn væri sálufélaginn minn í þriðja skiptið sem ég hitti hann
21 – Ég sit alltaf í sama horninu á sófanum og skrifa blogg færslur
22 – Ég elska dökkt súkkulaði
23 – Ég hræðist póst og fresta því alltaf að opna hann
24 – Ég les eina bók á ári
25 – Ég er búin að horfa á einn til tvo þætti af Gilmore Girls á dag síðan í september
26 – Ég er útskrifaður fatahönnuður
27 – Í menntaskóla var ég á mála-, félags-, fatahönnunar- og náttúrufræðibraut þangað
til að ég gat ákveðið mig og útskrifaðist á endanum með alltof margar einingar
28 – Ég er ómöguleg ef ég gleymi að taka vítamínin mín
29 – Ég hef aldrei farið til Spánar
30 – Þegar ég var yngri dreymdi mig um að búa í “Townhouse” eins og í Mrs. Doubtfire
31 – Ég er kölluð Tóta af mínum nánustu
32 – Ég drekk ekki kaffi
33 – Ég vildi óska þess að blóm væru ódýrari á Íslandi
34 – Ég hef ferðast til Svíþjóðar, Danmerkur, Englands, Þýskalands, Frakklands og Bandaríkjanna
35 – Þegar ég var lítið ætlaði ég að verða arkitekt og kökuskreytingakona
36 – Við Beyonce eigum sama afmælisdag og ég elska það
37 – Ég ásamt báðum foreldrum mínum og ömmu erum meyjur í stjörnumerkinu – ímyndið ykkur nú
38 – Ég er óstjórnlega hrædd við hafið, skip og báta
39 – Ég fæ martraðir ef ég er á leiðinni í flug en finnst svo ekkert mál að fljúga
40 – Ég get horft á sama þáttinn aftur, aftur, aftur og aftur
41 – Ég eyði alltof miklum tíma í að horfa á stelpur mála sig á YouTube
42 – Ég þvæ á mér hárið einu sinni í viku
43 – Það er svo gróft að það verður aldrei fitugt
44 – Að setja á mig maskara er það allra leiðinlegasta sem ég geri
45 – Ég eyði sirka hálftíma á hverju kvöldi í að þrífa á mér húðina og bera á mig krem
46 – Ég get ekki farið að sofa nema ég sé búin að fara í freyðibað
47 – Ég ELSKA avocado!
48 – Ég er ömurleg í öllum íþróttum
49 – Ég er ekki mikið fyrir jólalög en elska jólin
50 – Þegar ég bjó í Los Angeles tékkaði ég 3x hvort
að útidyrahurðin væri ekki læst áður en ég fór að sofa
Skemmtileg lesning 🙂 verð þó að viðurkenna að ég skil ekki hvernig hægt er að drekka ekki kaffi 😉
sammála þér með kaffið, svo vont…. margir hissa þegar þeir bjóða mér kaffi og ég afþakka 🙂
en mikið væri ég til i að sjá þig ljóshærða og með aðeins ljósari augabrúnir, held það muni klæða þig svaka vel 🙂 þó það sé líka flott svona.
svo sammála þér með að horfa á sama þáttinn aftur og aftur haha sérstaklega friends 🙂
og já ég er líka meyja og sysir mín og dóttir hennar.
skemmtilegt blogg hjá þér og gleðilega hátíð 🙂
Haha hárið er ljóst en augabrúnirnar svona náttúrulega dökkar svo ég lita þær aldrei
Ég er svo blönduð af foreldrum mínum- annað me svart hár og hitt ljóshært haha 😉
Skemmtilegt blogg 🙂
Gæti ekki verið meira sammála með númer 38 😉